Aðalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Sumarbústaðaferð

Innskráningar kubbur

Blogg hvað???

19. júní 2007 klukkan 22:39

Jæja það gagnar nú lítið að byrja með blogg síðu skrifa einu sinni og svo gerist ekkert í hálft ár.  En Það hefur nú margt gerst hjá mér og mínu fólki enda ekki við öðru að búast þegar það líður hálft ár á milli þess sem maður bloggar.  Svalur
Það eru allir fjölskyldumeðlimir búnir að eiga afmæli nema ég.  Vinnan er allveg ágæt.  Ég er að vinna aðeins í eldhúskassanum mínum sem fær nýtt nafn, heimiliskistan.  Ég sótti um styrk hjá Vinnumálastofnun til að markaðssetja kassann og það er frábær kona hún Hrönn hjá Umslag ehf sem er að hjálpa mér að hanna nýja miða og fleirra.  Nú ég er líka að vinna í því að stofna borðbúnaðarleigu því ég veit að ég er góð í því finna út hvað þarf í veislur, Saklaus en aðalástæðan fyrir því að ég ætla að opna borðbúnaðarleigu er að ég veit að það vantar meiri svona þjónustu á markaðinn, þeir sem er fyrir á markaðnum hafa ekki undan að sinna því svo ég tel mig vera góða viðbót á markaðinn.
Sumarfríið í sumar verður nú frekar slitrótt ein vika, vinna þrjár, tvær vikur frí vinna eina og svo ein vika frí.  já þetta er ekki eins og að vinna í skólanum þar sem ´öll starfsemi er búin um miðjan júni og byrjar ekki aftur fyrr en um miðjan ágúst. Það er svona bara, kostir og gallar í öllu.
jæja elskurnar mínar, læt þetta duga í bili og mun stefna á að bloggar oftar.
Læt vita þegar ég opna leiguna formlega
Kveðja
Helga

Þuríður Helga

Allt er breytingum háð.

19. nóvember 2006 klukkan 19:15

Um miðjan október fékk ég atvinnutilboð hjá góðu fyrirtæki hér í bæ en það er INNNES Koss  ég fór í viðtal og úr var að samningar náðust og ég sagði upp vinnunni í Fellaskóla og byrjaði að vinna hjá INNNES á mánudaginn 13.nóv s.l  ég starfa sem sölumaður í cateringdeildinni og mun fara í grunn og leikskólana og það er mjög spennandi.  Hlakka til þegar ég verð komin á fulla ferð.  Þessi vika er maður búin að vera að fóta sig og læra á kerfið og allt sem þarf að gera til að undirbúa sig. 
kveðja

Helga

Þuríður Helga

ferðasaga

19. nóvember 2006 klukkan 19:10

farið var á hótelið til að skila af sér töskum og koma sér fyrir.  farið var út að borða og kikja aðeins í kringum sig en mikið svakalega dimmir snemma þarna í St.jhons. Miðvikudagurinn byrjaði á því að fara i skoðunarferð sem reyndar tók 4 tíma en hefði verið hægt að klára á tveim, en ég og Lena tókum út okkar leikfimistíma fyrir árið Hlæjandi.  Svo var loks farið í Costco og verslað smávegis og dóti, hehehehhe. En svona var ferðin, verslað farið á barin, hlegið og hlegið.  Í stuttu máli GEGGJUÐ FERÐ OG FRÁBÆRUM KONUM.  Stelpur þið eruð allar æðislegar.

Þuríður Helga

St.Jhons

07. nóvember 2006 klukkan 01:32

jæja ekki er nú hægt að hrósa manni fyrir dugnað í bloggi, en smá sárabætur núna.  Ég kom heim aðfaranótt sunnudags eftir 5 daga dvöl á Nýfundalandi.  Við fórum nokkrar úr saumaklúbbnum ásamt trillunum þrem og það var svo meiriháttar gaman og við stóðum okkar allar vel í shopping trip eins og íslendingum er einum lagið.  Þegar við komum til St.jhons var tekið á móti okkar með súkkulaðiköku með íslenska fánanum á Brosandi.   
Meira seinni, þarf á fund hjá Félagi Auður


Þuríður Helga

Helgin mikla

08. október 2006 klukkan 06:43
Jæja þetta er nú meiri helgin. Seinniparturinn á þessari viku er búin að vera undirbúningur fyrir æfingarbúðirnar hjá Lúðrasveitinni  og svo var farið á föstudaginn uppí Borgarfjörð að Varmalandi.  Ég og Eyþór fórum reyndar ekki með á föstudeginum því Eyþóri var boðið í bekkjarafmæli á föstudagskvöldinu, en ég og Elfa mættum eldhressar með allan matinn og jú til að taka á móti peningum. Rútan lagði af stað en viti menn það þurfti að keyra Hvalfjörðinn því nú miður voru göngin lokuð vegna þess að varð bílvelta.  En ég er nú viss um að krakkarnir höfðu lumskt gaman að keyra fjörðinn Hlæjandi.   Um hádegi á laugardaginn lögðum við Eyþór af stað í Borgarfjörðinn og viðo fundum Varmaland eftir ekki svo langa leit.  Eyþór fór strax á æfingu og svo tók við sundtími og drekkutími, æfingar, kvöldmatur, æfingar og svo kvöldvaka.  Farið var í leiki og mikið svakalega var gaman hjá krökkunum og drengurinn minn skemmti sér svo vel að þegar við lögðum af stað í bæinn rúmlega ellefu var hann fljótur að sofna í bílnum.  Sunnudagurinn er svo planaður líka því bekkurinn hans er að fara í kajakferð á Stokkseyri.  Sigga mín var nú heima ásamt Kristínu og þær höfðu það nú bara nokkuð gott, en hún ætlar að koma með okkur á morgun og það er bara vonandi að það verði ekki svona hvasst eins í Borgarfirði í dag.  jæja ætla að koma mér í bælið.  Góða nótt og farið varlega
Helga
Þuríður Helga

bloggið

02. október 2006 klukkan 06:18
já maður er nú ekki vanur að blogga en það er nú stefnan að breyta því.  Vikan er búin að vera ósköp venjuleg fyrir utan að ég fór á tónleikana með Björgvini og mikið æðislega voru þeir góðir já Bjöggi kallinn klikkar ekki á því. Svo fórum við systurnar aðeins í bæinn á eftir og mín var nú bara að keyra.  Það var nefnilega fengið sér vel neðaní því á föstudagskvöldinu þegar ég ásamt fullt af skemmtilegu fólki í geiranum heimsóttum Sjófisk. Það var nú höfðinglegar móttökur á þeim bænum og þakka ég fyrir mig.Nokkrir fundir voru í vikunni en vikan komandi á eftir að vera mun meira að gera.  Helgin hjá okkur var fín, laugardagurinn fór í að kikja á ostadaga í Smáralindinni og svo kom Lára vinkona og mamma hennar og börn í kaffi til mín og ég bauð upp á þessa ljúfenga hressótertu o já hún var sko góð.  Sunnudagurinn var eytt í að búa til skartgripi en það er nýja hobbyið hjá okkur mæðgunum.  Eftir hádegi fórum við að kikja á vinafólk sem var að taka við sjoppurekstri íi Breiðholtinu og dvöldumst þar í góðan tíma að reyna leggja hönd á plóg.  Nú er komið október og það styttist óðum i að maður fari til St.Johns og það er komið mikil tilhlökkun .  jælja ég ætti að hætta þessu bulli og koma mér í bælið.  Bless þangað til næst.
GANGIÐ HÆGT UM GLEÐINNAR DYR.
HELGA
Þuríður Helga

vikan

20. september 2006 klukkan 03:28
jæja þá er vinnuvikan komin á fullt. Vinnudagurinn hjá mér byrjar á því að gefa ca 50 börnum hafargraut og það er aðnáunarvert hvað þau eru dugleg að borða grautinn.  Ég er búin að vera frekar þreytt þessa dagana en það þýðir víst ekki ekkert en að spýta í lófana því við í stjórn foreldrafélags skólalúðrasveitar Árbæjar og Breiðholts erum á fullu að undirbúa æfingarbúðir sem farnar verða í okt.  Svo á föstudaginn verður fyrirtækisheimsókn hjá góðu fyrirtæki hér í bæ og léttar veitingar í boði. Föstudagurinn þar á eftir verður spjall fundur hjá félagi Matur-saga-menning  www.matarsetur.is  og léttar veitingar í boði, já já það er bara nóg að gera hjá minni Hlæjandi en nóg í bili, styttist í að maður þurfi að koma sér í bælið að hvíla sig.  Farið varlega
kveðja
 Helgust
Þuríður Helga

Prufukeyrsla

17. september 2006 klukkan 23:46

jæja ég ákvað að prufa að blogga eins og svo margir aðrir.
Þessa helgi eyddi ég á Úlfljótsvatni í sumarhúsi Strv. Fyrst var vinnufundur með stjórn SAMFOKS og það var mikið hlegið og þetta var meirháttar að kynnast stjórnarfólki í öðru umhverfi.  Veðrið var meiriháttar, sól og blíða en samt blöstu haustlitirnir við okkur.  Á laugardags seinnipartinn komu krakkarnir mínir ásamt vinafólki mínu Önnu, Jóa og börnum.  s.s frábær helgi í góðum vinahóp, hvað er hægt að biðja um það betra?

Kveðja Helga

Þuríður Helga

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins

Könnun

Hvaða árstími finnst ykkur bestur?